Rachel vinkona mín frá Norður-Írlandi varð þrítug um daginn, og ég ákvað að senda henni smá mjúkan pakka í tilefni þess.

Aria dóttir hennar fékk þessa sokka frá Tinnu frænku... hún er tveggja ára og ég vona að þeir passi, ég er voða vitlaus í stærðum á svona börn... það sem að eg prjóna á litla minn hef ég fyrir reglu að hafa frekar bara of stórt - hann getur þá notað það einhverntíman!!

Rachel fékk eitt par af lufsum, enda klassísk og hlýleg vinagjöf :)

og svo henti ég í eitt stykki þæfða seríu... þær eru svo hlýlegar og ljúfar svona í skammdeginu... einsog sjá má hér að neðan.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli